Um okkur

Eigendur Baldvins og Þorvaldar eru Guðmundur Árnason söðlasmíðameistari og Ragna Gunnarsdóttir. Þau keyptu reksturinn haustið 1997 og opnuðu verslunina aftur eftir endurbætur í kjallaranum á Austurvegi 21, Selfoss í byrjun desember 1997. Í ágúst 1999 var verslunin flutt í stærra húsnæði að Austurvegi 56, Selfossi. Í október 2022 flutti verslunin og verkstæðið að Háheiði 2.  Starfsmenn eru 3

Guðmundur lærði söðlasmíði hjá Pétri Þórarinssyni (sem lærði á verkstæði Baldvins og Þorvaldar) og tók sveinspróf í febrúar 1997. Hann hefur síðan lokið meistaranámi í Söðlasmíði og útskrifað 3 sveina.

Ragna er lærður textílkennari frá KHÍ, útskrifuð vorið 1997.

Bára Másdóttir söðlasmiður. Lærði hjá Guðmundi og tók sveinspróf vorið 2009

Hjá Baldvin og Þorvaldi er lögð áhersla á margs konar viðgerðir, breytingar og nýsmíði. Fjölbreytileiki verkefna er mikill og leggur starfsfólk sig fram um að leysa vandamál viðskiptavinanna.