Eigin framleiðsla

Baldvin og Þorvaldur, söðlasmíðaverkstæði var stofnað árið 1905 í Reykjavík. Það var síðan flutt austur á Selfoss árið 1981 og hefur verið rekið þar síðan. Núverandi eigendur tóku við rekstrinum í lok nóvember árið 1997. Síðan þá hefur verið unnið markvisst að framleiðslu og viðgerðum á reiðtygjum og fylgihlutum fyrir hesta og menn. Einnig hefur hér verið sinnt hvers kyns sérsmíði fyrir bæði hesta og menn.Hér eru starfandi söðlasmíðameistari og söðlasmiður og hafa 3 nemar verið útskrifaðir sem söðlasmiðir.

Í gegnum árin hefur verslunarþátturinn stækkað jafnt og þétt og er nú rekin hér verslun með miklu úrvali af reiðtygjum, fatnaði og öllu því sem þarf til hestamennsku. Hér eru vörur fluttar bæði inn og talsvert út líka.