Almennar upplýsingar

Baldvin og Þorvaldur ehf
Austurvegi 56
800 Selfossi
Kt: 641197-2469
S: 482 1900
N: verslun@baldvinogthorvaldur.is

Verð á vöru

Öll verð eru gefin upp í íslenskum krónum með virðisaukaskatti og birt með fyrirvara um innsláttarvillur. Baldvin og Þorvaldur áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.

Að skipta og skila vöru

Veittur er 30 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Vöru má skila í verslun. Ef senda þarf vöru til baka greiðist sá sendingarkostnaður af viðskiptavini, nema vara sé rangt afgreidd.

Afhending vöru

Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun, eftir staðfestingu á móttöku greiðslu. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Baldvin og Þorvaldur ehf ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Baldvin og Þorvaldi til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. Frí heimaending er á pöntunum 20.000 kr og yfir.

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir, eða endurgreiðum ef þess er krafist.

Trúnaður (Öryggisskilmálar)

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Lög og varnarþing

Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur netverslun B&Þ á grundvelli þessara ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu einungis vísað til meðferðar hjá Héraðsdómi Suðurlands.

Selfoss, 20. Janúar 2021

Með fyrirvara um breytingar.